Snjallheimilið

Hvað kostar að gera heimilið snjallt?

Ljós sem kveikja sjálf, tenglar sem slökkva á sér, hiti sem fylgir deginum og skynjarar sem láta vita. Allt í núverandi rofum og dósum, með Shelly-einingum sem virka án nettengingar við útlönd.

Þú svarar spurningum um rýmin, ljósin og tenglana. Áætlunin sýnir efnið og verðbil, engin skuldbinding.

Einn dagur í snjallheimili

Lýsing, hitastýring, skynjarar og sjálfvirkar rútínur vinna saman allan daginn, frá morgni til kvölds, fyrir meiri þægindi og öryggi og mögulegan orkusparnað.

Þjónusta

Ljós og kveikingar

Ein eining á hvern ljósahóp í loftdósinni. Rofarnir þínir virka áfram, en ljósin kunna líka á tímastillingar, hreyfiskynjara og dimmun.

Tenglar og orka

Orkumælir í töflu sýnir hvað húsið notar og hvenær. Tenglar með mælingu slökkva á því sem gleymist.

Hiti og gluggatjöld

Hitastýring eftir svæðum, gluggatjöld sem fylgja sólinni. Allt stýrt úr einu appi eða Home Assistant.

Teikning og efnislisti

Raflagnateikning með IEC-táknum, lagnaleiðum, vírum og töflu. Efnislisti með verðbili úr íslenskum verslunum, svo rafvirkinn þinn getur gengið beint í verkið.

Eingöngu efni og hönnun í áætluninni: vinna, dósir, rör og akstur koma inn í tilboðið þegar húsið hefur verið skoðað.

Vörur í boði

Þetta er efnið sem áætlunin telur. Hvað hentar þínu húsi kemur í ljós þegar svörin liggja fyrir.

Ein Shelly-eining á hvern ljósahóp, í loftdósinni eða í töflunni á DIN-teini. Ljósin kveikja og slökkva úr rofanum eins og áður, og líka úr appi, með tímastillingu eða hreyfiskynjara.

Dimmer fyrir hvern dimmaðan ljósahóp, í loftdósinni, eða í töflunni þar sem tveir hópar deila einni einingu. Venjulegur vippurofi kveikir og slekkur aðeins, svo á dimmuðum hópum kemur þrýstirofi með gorm: haldið inni dimmar.

Núverandi rofar og tenglar eru notaðir áfram þar sem það hentar. Nýir rofar og tenglar eru vandaðir hönnunarrofar með vippu og ramma. Þráðlaus hnappur eða Shelly i4 í rofadósinni kveikir án aukavírs.

Ein eining á hvern glugga með mótor. Tjöldin hreyfast eftir tíma eða senu og má líka stjórna í appinu.

Ein eining á hvert hitasvæði, ofna eða gólfhita, og hitastýring á hverju svæði: Bluetooth hita- og rakaskynjari, eða Shelly-skjár á vegg sem er bæði rofi og hitastýring.

Orkumælir í töflu sýnir notkun hússins. Í töflunni geta líka verið Shelly Pro-einingar á DIN-teini og snjöll sjálfvör, sem má slökkva á úr fjarska og sýna álagið. Eitt sjálfvar er talið á hverja grein.

Hreyfi-, hita- og rakaskynjarar í rýmum og skynjarar á útihurðum. Þeir eru þráðlausir, tala Bluetooth við næstu Shelly-einingu eða Bluetooth-gátt.

COB-borðar í RGB, RGB með stillanlegu hvítu eða stillanlegu hvítu (CCT), með spenni og stýringu sem ræður við litina. Borðarnir eru teiknaðir sem línuleg ljós á grunnmyndinni og taldir á metra.

Home Assistant, ýmist sem lítil stjórnstöð eða lítil tölva, ef þú vilt allt á einum stað. Án stjórnstöðvar virka einingarnar í Shelly-appinu.

Kerfin sem við vinnum með

Þrjú kerfi, valin eftir húsinu og því sem þú vilt. Shelly er sjálfgefið í áætluninni, Plejd og Tuya eru valkostir.

Hvað er Home Assistant?

Home Assistant er stjórnstöð heimilisins: lítið tæki sem stendur heima hjá þér og tengir saman ljós, hita, gluggatjöld, skynjara og orkumælingu, sama frá hvaða framleiðanda tækin eru. Þú sérð allt húsið á einum skjá, í símanum, á spjaldtölvu eða í tölvu.

  • Eitt app í stað margra. Shelly, Tuya, Plejd og fjöldi annarra merkja á sama stað.
  • Húsið bregst við sjálft. Ljós kviknar þegar gengið er inn, hitinn lækkar þegar enginn er heima og þú færð skilaboð ef gluggi stendur opinn.
  • Allt er hjá þér. Stjórnstöðin vinnur heima, virkar þótt netið detti út og kostar enga áskrift heima fyrir.
  • Hún er ekki skylda. Án stjórnstöðvar virka tækin áfram í appi framleiðandans.

Shelly

Wi-Fi og Bluetooth einingar sem fara í dós eða töflu. Þær virka án skýs, tala við Home Assistant og ná yfir ljós, dimmun, gluggatjöld, hita og orkumælingu.

Shelly-eining í dós
Shelly-eining í dós
Shelly Pro á DIN-teini
Shelly Pro á DIN-teini
Veggskjár, rofi og hitastýring
Veggskjár, rofi og hitastýring
Hita- og rakaskynjari
Hita- og rakaskynjari
Hreyfiskynjari
Hreyfiskynjari
Ofnloki
Ofnloki

Plejd

Sænskt Bluetooth mesh-kerfi fyrir ljós. Einingarnar tala saman og styrkja netið, kerfið virkar án nettengingar og er sett upp í Plejd-appinu. Gateway þarf til að stýra að heiman. Enginn opinber Home Assistant-stuðningur, aðeins samfélagslausnir.

Gateway
Gateway
Dimmer í dós
Dimmer í dós
Rofaliði í dós
Rofaliði í dós
Gluggatjaldastýring
Gluggatjaldastýring
Þráðlaus veggrofi
Þráðlaus veggrofi
Hreyfiskynjari
Hreyfiskynjari
Hitastillir
Hitastillir
LED-straumgjafi
LED-straumgjafi

Tuya (Zigbee og Wi-Fi)

Opinn vettvangur með mörgum framleiðendum, til dæmis BSEED. Hentar þar sem verð skiptir máli og útlit hönnunarrofa er mikilvægt: glerrofar, tenglar með USB og hitastýringar. Virkar með Zigbee og Home Assistant. Vottun, gæði og ábyrgð þarf að kanna fyrir hverja vöru.

Tengill með USB
Tengill með USB
Rofi
Rofi
Tvöfaldur rofi
Tvöfaldur rofi
Snertirofi úr gleri
Snertirofi úr gleri

Myndir eru úr vörulistum framleiðenda og söluaðila. Vörumerki og myndir eru eign eigenda sinna.

Innlagnaefni

Rofar, tenglar og rammar, valið eftir útliti og verði. Rammi er seldur sér og ræðst af því hve margar einingar eru í dósinni, frá einni upp í fimm; BSEED selur rammann líka sér.

Sjáðu línurnar á vegg

Veldu línu, lit á vegg og lit á efninu. Hver mynd er einn hlutur sem línan býður.

Lína
Veggur
Litur
Sýn

Legrand Mosaic N

Legrand Mosaic N
Nærmynd, tölvugerð
Rofi
Tvöfaldur rofi
Tengill
Tengill með USB
USB-hleðsla
Nettengill
Tvöfaldur nettengill
Sjónvarpstengill
Blindlok
Saman í einum ramma
Tvöfaldur rofiTengill
TengillTengillTengill
Rammar taldir í einingum, fyrir ferkantaðar dósir
Þrjár einingar: mjór rofi og tengill
Fjórar einingar: rofi og tengill
Sex einingar: tveir tenglar og tveir mjóir rofar

Legrand Valena

Legrand Valena
Nærmynd, tölvugerð
Rofi
Tvöfaldur rofi
Þrefaldur rofi
Tengill
Tengill með USB
USB-hleðsla
Nettengill
Tvöfaldur nettengill
Sjónvarpstengill
Gluggatjaldarofi
Blindlok
Saman í einum ramma
Þrefaldur rofiTengill
RofiTvöfaldur rofiTengill

Merten System M

Merten System M
Nærmynd, tölvugerð
Rofi
Tvöfaldur rofi
Tengill
Tengill með USB
Nettengill
HDMI-tengill
Gluggatjaldarofi
Blindlok
Saman í einum ramma
Tvöfaldur rofiTengill
TengillTengillNettengill

BSEED gler

BSEED gler
Nærmynd, tölvugerð
Rofi
Tvöfaldur rofi
Þrefaldur rofi
Tengill
Tengill með USB
Tengill með loki
Tengill með tveimur USB
65 W hleðsla
Gluggatjaldarofi
Dyrabjöllurofi
Snúningsdimmer
Snjallhlutir
Snjallrofi
Snjallrofi, tvöfaldur
Snjallrofi, þrefaldur
Snjallrofi, fjórfaldur
Snjalldimmer
Snjalltengill
Snjallrofi fyrir rúllugardínur
Snjallrofi fyrir gardínur
Saman í einum ramma
Snjallrofi, tvöfaldurTengill
Snjallrofi, þrefaldurSnjalldimmerTengill með USB

BSEED plast

BSEED plast
Nærmynd, tölvugerð
Rofi
Tvöfaldur rofi
Rofi með gaumljósi
Tvöfaldur rofi með gaumljósi
Tengill
Tengill með USB
Tengill með loki
Tengill með tveimur USB
65 W hleðsla
Nettengill
Tvöfaldur nettengill
Sjónvarpstengill
Gervihnattatengill
Símatengill
HDMI-tengill
Gluggatjaldarofi
Viftuhraðarofi
Dyrabjöllurofi
Snúningsdimmer
Blindlok
Snjallhlutir
Snjallrofi
Snjallrofi, tvöfaldur
Snjallrofi, þrefaldur
Snjallrofi, fjórfaldur
Snjalldimmer
Snjalltengill
Snjallrofi fyrir rúllugardínur
Snjallrofi fyrir gardínur
Hitastillir, vatnshiti
Hitastillir, rafhiti
Saman í einum ramma
Tvöfaldur rofiTengill
Snjallrofi, tvöfaldurSnjallrofi fyrir rúllugardínurTengillNettengill

Teikningar og tölvugerðar þrívíddarmyndir, ekki ljósmyndir: þær sýna gerð, stærð og lögun hlutanna, ekki nákvæmt útlit. Ekki fást allir hlutir í öllum litum.

Skoða alla hluti með síum

Legrand Mosaic N

Hvítt kerfi sem klemmist á grind. Rammar fyrir eina til fjórar dósir í röð og grind undir hverjum ramma, líka þeim einfalda.

Rofi
Rofi
Rofi, ein eining
Rofi, ein eining
Tengill
Tengill
Nettengill, ein eining
Nettengill, ein eining
Nettengill, tvær einingar
Nettengill, tvær einingar
Tvöfaldur nettengill
Tvöfaldur nettengill
Rammi, 3 einingar
Rammi, 3 einingar
Rammi, 5 einingar
Rammi, 5 einingar
Grind undir einfaldan ramma
Grind undir einfaldan ramma

Legrand Valena

Hagkvæmari lína Legrand fyrir hringlaga dósir. Rofar með einni, tveimur eða þremur vippum og rammar frá einum upp í fimm.

Rofi
Rofi
Tvöfaldur rofi
Tvöfaldur rofi
Tengill
Tengill
Rammi, einfaldur
Rammi, einfaldur
Rammi, þrefaldur
Rammi, þrefaldur

Merten System M

Þýskt kerfi þar sem grunneining, vippa og rammi eru hvert í sínu lagi. Rofar með einni eða tveimur vippum og rammar frá einum upp í fimm.

Rofamekanismi
Rofamekanismi
Vippa
Vippa
Tengill
Tengill
Rammi, einfaldur
Rammi, einfaldur
Rammi, þrefaldur
Rammi, þrefaldur

BSEED

Zigbee-rofar og tenglar úr gleri eða plasti á Tuya-vettvangi, mekanisminn með rofann innbyggðan. Rammi er seldur sér eftir fjölda eininga, frá einni upp í fimm.

Rofi
Rofi
Snertirofi úr gleri
Snertirofi úr gleri
Tengill með USB
Tengill með USB
Tvöfaldur rofi
Tvöfaldur rofi

Berker, Gira, Elko og Bticino fást hjá Rönning. Við gerum áætlun um þau kerfi sé þess óskað.

Myndir eru úr vörulistum framleiðenda og söluaðila. Vörumerki og myndir eru eign eigenda sinna.

Ferlið

  1. Þú svarar spurningum. Rými, ljós, kveikingar, rofar og tenglar, hvað á að dimma, hvaða búnað þú vilt og hvort lagnir eru nýjar. Tvær mínútur í símanum.
  2. Þú færð verðbil strax. Efnið eftir hlutverkum, forsendurnar sagðar, verð úr íslenskum verslunum frá og til. Áætlun, ekki tilboð.
  3. Þú sendir fyrirspurn. Svörin fylgja með, svo ég byrja ekki á núlli. Ég hef samband og við förum yfir húsið.
  4. Teikning, efnislisti og tilboð. Lagnir og staðsetningar teiknaðar á grunnmynd hússins, efnislisti með verði, og nákvæmara verð en vefurinn getur gefið.

Dæmi

Einbýlishús á Akureyri, eldri lagnir

Sjö rými, þrettán ljósahópar með þrjá dimmaða, orkumælir í töflu og hreyfi- og hitaskynjarar í hverju rými. Rofar og lagnir óbreyttar, einingarnar fara í loftdósirnar.

Einingar
13 í loftdósum + 1 orkumælir
Skynjarar
14 þráðlausir
Efni, verðbil
155–190 þús. kr.
Stjórnstöð
til staðar

Verð með VSK úr íslenskum verslunum haustið 2026, án vinnu. Raunverð ræðst af húsinu og því sem kemur í ljós við skoðun.

Um Snjallheimilið

Snjallheimilið er Davíð á Akureyri. Áralöng reynsla úr rafvirkjun, menntun í tölvu- og netkerfum og eigið heimili sem hefur verið snjallt í mörg ár, með kerfi sem hann skrifar sjálfur og gefur út sem opinn hugbúnað fyrir Home Assistant.

Lausnirnar byggja á Shelly-einingum: þær sitja í núverandi dósum, virka á heimanetinu án skýs og tala við Home Assistant, Google og Apple. Engin áskrift, engin læsing við eitt vörumerki umfram það sem þú velur sjálfur.

Tenging við rafkerfi hússins er unnin af löggiltum rafvirkja í samræmi við reglugerð um raforkuvirki. Snjallheimilið sér um hönnunina, efnið og uppsetningu hugbúnaðar.

Hafa samband

Ertu með spurningu? Hús sem þú vilt láta skoða eða hreinlega bara að forvitnast? Skrifaðu nokkrar línur. Ef þú vilt verðbil fyrst, byrjaðu á áætluninni, þá fylgja svörin með fyrirspurninni.